Aðalskipulagsbreyting Eyjafjarðarsveit - skipulagslýsing, göngu- og reiðleiðir

Málsnúmer 2012110170

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 148. fundur - 28.11.2012

Erindi dagsett 22. nóvember 2012 frá Eyjafjarðarsveit þar sem fram kemur að sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hafi samþykkt skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi og deiliskipulagi varðandi stíga frá Hrafnagilshverfi til Akureyrar. Bent er á að þeir sem vilja koma á framfæri ábendingum vegna skipulagslýsingarinnar séu beðnir um að senda þær skriflega til Eyjafjarðarsveitar fyrir 30. nóvember nk.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna.