Fjölnisgata 6b-d - umsókn um byggingarleyfi og breytingar

Málsnúmer 2012110118

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 148. fundur - 28.11.2012

Erindi dagsett 16. nóvember 2012 þar sem Gunnar B. Þórhallsson f.h. Bjarkaness ehf, kt. 671107-0710, sækir um breytingar á húsnæði á lóðum 6b, 6c og 6d við Fjölnisgötu ásamt byggingarleyfi vegna viðbyggingar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í umsóknina og vísar erindinu til vinnslu deiliskipulags svæðisins sem nú er í vinnslu.