Vættagil 2 - umsókn um stækkun á bílastæði

Málsnúmer 2012100073

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 416. fundur - 10.10.2012

Erindi dagsett 9. október 2012 þar sem Guðmundur Ómarsson sækir um stækkun á bílastæði á lóð nr. 2 við Vættagil. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og afstöðumynd.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem nú þegar er úrtak fyrir tvö bílastæði á lóð.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 417. fundur - 17.10.2012

Erindi móttekið 16. október 2012 þar sem Guðmundur Ómarsson sækir um að gera tvö aðskilin stæði með 3,5 metra uppákeyrslu á hvort fyrir sig á lóð nr. 2 við Vættagil. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og afstöðumynd.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðna breytingu á bílastæði.  Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.