Hólatún 22 - umsókn um breytingar úti

Málsnúmer 2012100061

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 416. fundur - 10.10.2012

Erindi dagsett 8. október 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Guðmundar Karls Tryggvasonar sækir um breytingar utandyra á lóð nr. 22 við Hólatún. Meðfylgjandi eru teikningar.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 419. fundur - 31.10.2012

Erindi dagsett 23. október 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Guðmundar Karls Tryggvasonar óskar eftir leyfi til að breyta tímabundið notkun á bílgeymslu í geymslu og geymslu í hobby herbergi með snyrtingu í húsi nr. 22 við Hólatún. Reiknað er með að þetta fyrirkomulag standi í u.þ.b. fjögur ár.
Einnig er sótt um breytingar á vesturstafni húss. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson dagsettar 22. október 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.