Norðurtangi 7 - umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúða-gáma.

Málsnúmer 2012090237

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 415. fundur - 26.09.2012

Erindi dagsett 26. september 2012 þar sem Kristinn Hreinsson f.h. Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, sækir um skammtíma stöðuleyfi fyrir fjóra 40 feta vinnubúða-gáma á lóð nr. 7 við Norðurtanga. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir gámana til 1. júní 2013.