Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

415. fundur 26. september 2012 kl. 13:00 - 14:15 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Ásabyggð 2 - umsókn um stækkun á bílastæði

Málsnúmer 2012090219Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2012 þar sem Erla Björnsdóttir sækir um stækkun á bílastæði við hús sitt að Ásabyggð 2. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir umbeðna stækkun á bílastæði. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

 

2.Hafnarstræti 28 - umsókn um leyfi fyrir breytingum innanhúss á 2. hæð

Málsnúmer 2012090207Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. september 2012 þar sem Óskar Gísli Sveinsson f.h. Fasteigna Akureyrar, kt. 710501-2380, óskar eftir að opna tímabundið á milli tveggja íbúða á 2. hæð að Hafnarstræti 28. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson og nánari skýringar í bréfi.

Skipulagsstjóri samþykkir tímabundna breytingu á innra skipulagi íbúða 0203 og 0204 til þriggja ára.

3.Ljómatún 2-14 - umsókn um eldstæði í íbúð nr. 6

Málsnúmer 2012090057Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Kristins Tómassonar og Guðbjargar Ingu Ragnarsdóttur sækir um sð setja eldstæði ásamt reykháfi í íbúð nr. 6 við Ljómatún 2-14. Meðfylgjandi eru teikningar með skýringum eftir Steinmar H Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar og skriflegt samþykki íbúa raðhússins 24. september 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Njarðarnes 8 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á 2. hæð

Málsnúmer 2012090192Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. september 2012 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Car-X ehf., kt. 490304-3390, sækir um leyfi til að breyta hluta af efri hæð að Njarðarnesi 8 í vörulager.
Einnig er sótt um undanþágu frá byggingareglugerð nr. 112-2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c varðandi hönnun umferðaleiða innan bygginga sjá kafla 6.4.
2. Gr. 6.4.12. Lyftur og lyftupallar.
Meðfylgjandi eru nánari skýringar í bréfi og teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Sómatún 9-17 - umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu

Málsnúmer 2012080126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. ágúst 2012 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 9-17 við Sómatún. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Óskað er eftir undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Innkomnar nýjar teikningar 18. september 2012

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

6.Hólmatún 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012090208Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. september 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 5 við Hólmatún. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Hólmatún 7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012090209Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. september 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 7 við Hólmatún. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Hólmatún 9 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012090210Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. september 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 9 við Hólmatún. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu þar til breytt deiliskipulag hefur tekið gildi.

9.Norðurtangi 7 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011030080Vakta málsnúmer

Erindi dags. 26. september 2012 þar sem Kristinn Hreinsson f.h. Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, sækir um lóð nr. 7 við Norðurtanga. Meðfylgjandi er umsögn um fyrirtækið frá CREDITINFO. Endurúthlutun.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Skipulags- og byggingarskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

10.Lundargata 6b - umsókn um leyfi fyrir breytingum og endurnýjun innanhúss

Málsnúmer 2012090216Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2012 þar sem Rafn Vatnsdal Rafnsson og Axel Rafnsson sækja um leyfi til að einangra veggi og loft og lagfæra húsið að Lundargötu 6b. Einnig er sótt um að endurnýja glugga.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu og óskar eftir nánari gögnum skv. fylgiblaði.

11.Norðurtangi 7 - umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúða-gáma.

Málsnúmer 2012090237Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. september 2012 þar sem Kristinn Hreinsson f.h. Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, sækir um skammtíma stöðuleyfi fyrir fjóra 40 feta vinnubúða-gáma á lóð nr. 7 við Norðurtanga. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir gámana til 1. júní 2013.

Fundi slitið - kl. 14:15.