Hafnarstræti 28 - umsókn um leyfi fyrir breytingum innanhúss á 2. hæð

Málsnúmer 2012090207

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 415. fundur - 26.09.2012

Erindi dagsett 20. september 2012 þar sem Óskar Gísli Sveinsson f.h. Fasteigna Akureyrar, kt. 710501-2380, óskar eftir að opna tímabundið á milli tveggja íbúða á 2. hæð að Hafnarstræti 28. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson og nánari skýringar í bréfi.

Skipulagsstjóri samþykkir tímabundna breytingu á innra skipulagi íbúða 0203 og 0204 til þriggja ára.