Drottningabraut - Nökkvasvæði - tímabundið leyfi fyrir húsi

Málsnúmer 2012080088

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 411. fundur - 30.08.2012

Erindi dagsett 27. ágúst 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Nökkva félags siglingamanna, kt. 450979-0319, óskar eftir tímabundnu stöðuleyfi fyrir lítið timburhús á athafnasvæði Nökkva við Drottningabraut lnr. 173492. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 412. fundur - 05.09.2012

Erindi dagsett 27. ágúst 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Nökkva, félags siglingamanna, kt. 450979-0319, óskar eftir tímabundnu stöðuleyfi fyrir lítið timburhús á athafnasvæði Nökkva við Drottningabraut lnr. 173492. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomin ný teikning 5. september 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir húsið til 1. september 2013.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 467. fundur - 30.10.2013

Erindi dagsett 14. október 2013 þar sem Rúnar Þór Björnsson f.h. Nökkva, félags siglingamanna á Akureyri, sækir um áframhaldandi stöðuleyfi fyrir bráðabirgðahúsi sem sett var upp á Höepfnersbryggju 2012.
Einnig óskar klúbburinn eftir að fá að staðsetja 40 feta gám, sem er sandblásinn og málaður, austast á nýja landfyllingu meðfram Drottningarbraut. Gámurinn verður notaður sem geymsla á bátum og búnaði yfir veturinn og einnig á sumarnámskeiðum klúbbsins meðan á nýframkvæmdum stendur.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi í 1 ár fyrir húsi og gámi.