Óseyri 4 - umsókn um nýja utanhússklæðningu

Málsnúmer 2012080072

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 411. fundur - 30.08.2012

Erindi dagsett 22. ágúst 2012 þar sem Haukur Þórðarson f.h. Óseyrar 4 ehf., kt. 690904-2170, Norðurorku hf., kt. 550978-0169, S. Guðmundssonar ehf., Plasteigna ehf., kt. 650609-0340 og Neptune ehf., kt. 460308-0540, sækir um framkvæmdaleyfi til að klæða fasteignina að Óseyri 4 að utan með stálklæðningu með innbrenndri lakkhúð. Meðfylgjandi eru nánari skýringar, útlits- og grunnteikningar.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið, skila skal inn leiðréttri skráningartöflu.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 506. fundur - 28.08.2014

Teikningar mótteknar 8. ágúst 2014 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Óseyri 4 ehf., kt. 690904-2170, Norðurorku hf., kt. 550978-0169, S. Guðmundsson ehf., Plasteignir ehf., kt. 650609-0340, og Neptune ehf., kt. 460308-0540, leggur inn breytingarteikningar þar sem óskað er eftir heimild til að einangra útveggi rýma 01-0101 og 01-0102 að Óseyri 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.