Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

506. fundur 28. ágúst 2014 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Gata sólarinnar 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014070003Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júní 2014 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Úrbótamanna ehf., kt. 410683-0599, sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 2 við Götu sólarinnar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynjar Einarsson.
Innkomnar teikningar 27. júlí 2014.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Gránufélagsgata 47 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020258Vakta málsnúmer

Innkomnar teikningar 21. ágúst 2014 þar sem Haukur Ásgeirsson f.h. Idea ehf., kt. 601299-2249, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Gránufélagsgötu 47.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Óseyri 4 - umsókn um nýja utanhússklæðningu

Málsnúmer 2012080072Vakta málsnúmer

Teikningar mótteknar 8. ágúst 2014 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Óseyri 4 ehf., kt. 690904-2170, Norðurorku hf., kt. 550978-0169, S. Guðmundsson ehf., Plasteignir ehf., kt. 650609-0340, og Neptune ehf., kt. 460308-0540, leggur inn breytingarteikningar þar sem óskað er eftir heimild til að einangra útveggi rýma 01-0101 og 01-0102 að Óseyri 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Tungusíða 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014080045Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. ágúst 2014 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Önnu Snjólaugar Arnardóttur óskar eftir samþykki fyrir reyndarteikningum fyrir Tungusíðu 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hildi Bjarnadóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Súluvegur 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014080069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2014 þar sem Hjörtur Narfason f.h. HGH verks ehf., kt. 540510-0400, sækir um byggingarleyfi fyrir Súluveg 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Glerárgata 32 - umsókn um stöðuleyfi fyrir gáma

Málsnúmer 2014010266Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. ágúst 2014 þar sem Jón F. Ólafsson f.h. Ljósgjafans ehf., kt. 561105-0490, sækir um stöðuleyfi fyrir tvo gáma við Glerárgötu 32, bakhús. Á milli gámanna verður bil sem lokað verður með klæðningu í annan endann. Meðfylgjandi er teikning.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Stöðuleyfið gildir til 31. desember 2015.

Fundi slitið - kl. 14:00.