Byggðavegur 89 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012080042

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 409. fundur - 15.08.2012

Erindi dagsett 14. ágúst 2012 þar sem Leifur Jónsson sækir um að gera bílastæði við hús sitt að Byggðavegi 89 með aðkomu frá Ásabyggð. Meðfylgjandi er afstöðumynd

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðna stækkun á bílastæði um 4 metra. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.