MS félag Íslands - styrkbeiðni 2012

Málsnúmer 2012060194

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1146. fundur - 27.06.2012

Erindi dags. 21. júní 2012 frá framkvæmdastjóra MS félags Íslands þar sem sótt er um 100.000 kr. styrk til leigu og reksturs íbúðar sem ætluð er til skammtíma afnota fyrir MS-sjúklinga sem þurfa að leita sér lækninga í Reykjavík. MS-félagið fékk styrk frá Akureyrarbæ vegna íbúðarinnar árið 2009 að upphæð kr. 100.000.

Félagsmálaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000.