Félagsmálaráð

1146. fundur 27. júní 2012 kl. 14:00 - 16:34 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Jóhann Ásmundsson
  • Sif Sigurðardóttir
  • Pétur Maack Þorsteinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Brit Bieltvedt
  • Karólína Gunnarsdóttir
  • Anna Marit Níelsdóttir
  • Lára Ólafsdóttir
  • Bryndís Dagbjartsdóttir fundarritari
Dagskrá
Jóhann Ásmundsson mætti kl. 14:15

1.Heilsueflandi grunnskóli

Málsnúmer 2012060188Vakta málsnúmer

Erindi dags. 19. júní 2012 frá Þórdísi Rósu Sigurðardóttur skólahjúkrunarfræðingi í Lundarskóla varðandi heilsueflandi grunnskóla.

Félagsmálaráð þakkar áhugavert erindi og vísar því til skólanefndar.

2.MS félag Íslands - styrkbeiðni 2012

Málsnúmer 2012060194Vakta málsnúmer

Erindi dags. 21. júní 2012 frá framkvæmdastjóra MS félags Íslands þar sem sótt er um 100.000 kr. styrk til leigu og reksturs íbúðar sem ætluð er til skammtíma afnota fyrir MS-sjúklinga sem þurfa að leita sér lækninga í Reykjavík. MS-félagið fékk styrk frá Akureyrarbæ vegna íbúðarinnar árið 2009 að upphæð kr. 100.000.

Félagsmálaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000.

3.Vestursíða - staða mála

Málsnúmer 2012040018Vakta málsnúmer

Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA gerði grein fyrir stöðu mál varðandi nýbyggingu við Vestursíðu. Bygging nýja hjúkrunarheimilisins hefur gengið vel og er vonast til að byggingin verði afhent á tilsettum tíma. Reglur um búnaðarkaup bárust í lok maí og er nú verið að vinna að búnaðarkaupum. Mikill áhugi er á störfum í Vestursíðu og bárust á annað hundrað umsóknir. Ráðnir verða um 20 nýir starfsmenn í mismunandi starfshlutföll og er ráðningum að mestu lokið. Auglýst hefur verið eftir hugmyndum að nöfnum á heimilin í Vestursíðu og þurfa hugmyndir að berast fyrir 30. júní nk.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

4.Öldrunarheimili Akureyrar - þjónustusamningur - staða mála

Málsnúmer 2012060192Vakta málsnúmer

Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA lagði fram til kynningar minnisblað dags. 24. júní 2012 vegna þjónustusamninga við ÖA. Drög að þjónustusamningi við ÖA hafa borist frá Sjúkratryggingum Íslands. Leitað hefur verið eftir samráði við önnur öldrunarheimili og Samband íslenskra sveitarfélaga vegna málsins. Málin eru í skoðun.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

5.Reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma

Málsnúmer 2012060181Vakta málsnúmer

Erindi dags. 31. maí 2012 frá velferðarráðuneytinu varðandi vinnulag við nýja reglugerð um færni- og heilsumat við hvíldarinnlagnir.
Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á Búsetudeild kynnti nýja reglugerð frá velferðarráðuneytinu um færni- og heilsumat. Í stað tveggja vistunarmatsnefnda hefur verið skipuð þriggja manna færni- og heilsumatsnefnd í hverju heilbrigðisumdæmi til þess að annast mat á þörf einstaklinga fyrir dvöl í hjúkrunarrými og dvalrrými. Nýmæli er að nefndin metur líka þörf fyrir hvíldarinnlagnir.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

6.Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2012

Málsnúmer 2012030172Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar 5 mánaða rekstraryfirlit þeirra málaflokka sem undir félagsmálaráð heyra.

7.Félagsmálaráð - starfsemi 2010-2014

Málsnúmer 2010060081Vakta málsnúmer

Bryndis Dagbjartsdóttir skrifstofustjóri fjölskyldudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar lögðu fram tillögu að fundaáætlun félagsmálaráðs fyrir seinni hluta árs 2012.

Félagsmálaráð samþykkir framlagða tillögu.

8.Fjárhagsáætlun 2013 - félagsmálaráð

Málsnúmer 2012060169Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlunarferli 2013 og rammar lagðir fram til kynningar.

9.Félagsmálaráð Akureyrar - sumarfrí

Málsnúmer 2011060086Vakta málsnúmer

Þar sem þetta er síðasti fundur félagsmálaráðs fyrir sumarfrí verður næsti fundur ráðsins miðvikudaginn 15. ágúst nk.

Fundi slitið - kl. 16:34.