Öldrunarheimili Akureyrar - þjónustusamningur - staða mála

Málsnúmer 2012060192

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1146. fundur - 27.06.2012

Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA lagði fram til kynningar minnisblað dags. 24. júní 2012 vegna þjónustusamninga við ÖA. Drög að þjónustusamningi við ÖA hafa borist frá Sjúkratryggingum Íslands. Leitað hefur verið eftir samráði við önnur öldrunarheimili og Samband íslenskra sveitarfélaga vegna málsins. Málin eru í skoðun.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.