Fimleikasamband Íslands - ósk um afnot af íþróttahúsi Giljaskóla 1.- 6. ágúst 2012

Málsnúmer 2012050085

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 111. fundur - 24.05.2012

Erindi dags. 7. maí 2012 frá Birni Björnssyni og Birgi Björnssyni f.h. Fimleikasambands Íslands þar sem óskað er eftir æfingaaðstöðu í íþróttahúsi Giljaskóla fyrir landslið í hópfimleikum dagana 1.- 6. ágúst 2012. Jafnframt er óskað eftir gistingu fyrir liðin í Giljaskóla.

Íþróttaráð fagnar heimsókn landsliða Íslands í hópfimleikum til Akureyrar um Verslunarmannahelgina 2012. Íþróttaráð samþykkir beiðni Fimleikasambands Íslands um afnot af íþróttahúsi Giljaskóla. Beiðni um gistingu í Giljaskóla er vísað til skólanefndar.