Fræðslu- og uppeldismál - rekstur 2012

Málsnúmer 2012050017

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 9. fundur - 07.05.2012

Fyrir fundinn var lagt til kynningar rekstraruppgjör fyrir fyrstu 3 mánuði ársins. Þar kemur fram að hagræðing í mötuneytum leikskóla hefur ekki gengið eftir og stefnir því í hallarekstur á málaflokknum að öllu óbreyttu.

Skólanefnd - 17. fundur - 29.10.2012

Rekstrarstaða fræðslu- og uppeldismála 26. október 2012

Skólanefnd óskar eftir áliti skólastjóra tónlistarskóla, leik- og grunnskóla á fjárhagsáætlun 2013 fyrir hverja stofnun.

 

Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista bókaði eftirfarandi:

Ég lýsi yfir áhyggjum vegna þess hversu málaflokknum virðist hafa verið þröngur stakkur skorinn í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs og hvet skólanefnd til að tryggja skólamálum nægt fjármagn næsta ár. Að öðrum kosti blasir við veruleg þjónustuskerðing.

 

Fulltrúar L-listans í skólanefnd bókuðu eftirfarandi:

Við fjárhagsáætlanavinnu fyrir árið 2013 hefur verið haft að leiðarljósi að tryggja skólum það fjármagn sem þarf til að viðhalda núverandi þjónustustigi.