Skólanefnd

17. fundur 29. október 2012 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Sigríður María Hammer
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Valur Sæmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • fulltrúi skólastjóra
  • Lilja Þorkelsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Kristlaug Þ Svavarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Helga María Harðardóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Guðrún Elva Lárusdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Karl Frímannsson fræðslustjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson fræðslustjóri
Dagskrá

1.Fræðslu- og uppeldismál - rekstur 2012

Málsnúmer 2012050017Vakta málsnúmer

Rekstrarstaða fræðslu- og uppeldismála 26. október 2012

Skólanefnd óskar eftir áliti skólastjóra tónlistarskóla, leik- og grunnskóla á fjárhagsáætlun 2013 fyrir hverja stofnun.

 

Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista bókaði eftirfarandi:

Ég lýsi yfir áhyggjum vegna þess hversu málaflokknum virðist hafa verið þröngur stakkur skorinn í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs og hvet skólanefnd til að tryggja skólamálum nægt fjármagn næsta ár. Að öðrum kosti blasir við veruleg þjónustuskerðing.

 

Fulltrúar L-listans í skólanefnd bókuðu eftirfarandi:

Við fjárhagsáætlanavinnu fyrir árið 2013 hefur verið haft að leiðarljósi að tryggja skólum það fjármagn sem þarf til að viðhalda núverandi þjónustustigi.

2.Gjaldskrármál vegna útleigu á húsnæði grunnskóla

Málsnúmer 2011090071Vakta málsnúmer

Tillaga að gjaldskrá vegna afnota og útleigu á grunnskólum.

Skólanefnd samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá.

3.Opnunartími leikskóla

Málsnúmer 2009040028Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 11. október 2012, sem bæjarráð 18. október sl. vísaði til skólanefndar:
Elsa Pétursdóttir mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Erindi hennar varðar opnunartíma leikskóla.

Skólanefnd er sammála um að með samþykkt nefndarinnar frá 11. apríl 2012 þá sé það í ákvörðunarvaldi hvers leikskólastjóra hvort opnunartími verði lengdur.

Sjá nánar skýrslu stýrihóps á heimasíðu skóladeilda: http://www.akureyri.is/static/files/skoladeild/stjornkerfi/skyrslur/Styrihopur_minnisblad_loka_mars_2012.pdf

4.Skólastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2003060065Vakta málsnúmer

Tillaga um endurskoðun á skólastefnu Akureyrarbæjar.

Skólanefnd felur fræðslustjóra að vinna að málinu.

5.Starfsáætlun skólanefndar 2013

Málsnúmer 2012070054Vakta málsnúmer

Fundardagskrá skólanefndar árið 2013 lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið - kl. 16:30.