Ráðhústorg 3 - breytt notkun

Málsnúmer 2012050002

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 395. fundur - 02.05.2012

Erindi dagsett 27. apríl 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Haralds Pálssonar leggur inn tillöguteikningar þar sem 2. hæð í Ráðhústorgi 3 er breytt úr skrifstofuhúsnæði í íbúð og gistieiningu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða byggingarleyfi þegar umsókn um það berst.