Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

395. fundur 02. maí 2012 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Grænamýri 20 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012030260Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. apríl 2012 þar sem Sigurður Sigurðsson og Hólmfríður Dóra Kristjánsdóttir sækja um leyfi til að gera bílastæði og aðkeyrslu frá Mýravegi að bakdyrainngangi húss síns að Grænumýri 20. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsstjóra hefur borist neikvæð umsögn framkvæmdadeildar og erindinu er því hafnað.

2.Krókeyrarnöf 15 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011120018Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Byggingarfélagið Hyrna ehf., kt. 710594-2019, óskar eftir að vera byggingarstjóri yfir nýbyggingunni nr. 15 við Krókeyrarnöf. Umboð hefur Helgi Snorrason.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

 

3.Oddeyrartangi lnr. 149144 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012040138Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 25. apríl 2012 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Skjaldborgar kröfuhafafélags 5 ehf., kt. 610510-2560, óskar eftir leyfi til að gera breytingar á rými milli eininga nr. 12 og nr. 15 og hefja þar starfsemi netaverkstæðis. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

4.Ránargata 10 - umsókn um breytingar

Málsnúmer BN100274Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 05.11.2010 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Maríu Jesperson, Antons Inga Þorsteinssonar, Eydísar Elvu Guðmundsdóttur og Axels Jónasar Stefánssonar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á kvistum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar ásamt skráningartöflu 26. apríl 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Ráðhústorg 3 - breytt notkun

Málsnúmer 2012050002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. apríl 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Haralds Pálssonar leggur inn tillöguteikningar þar sem 2. hæð í Ráðhústorgi 3 er breytt úr skrifstofuhúsnæði í íbúð og gistieiningu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða byggingarleyfi þegar umsókn um það berst.

6.Sjávargata 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012040166Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Bjarna L. Thorarensen sækir um leyfi til að byggja vélageymslu við eldra hús á lóðinni Sjávargötu 1 (Eyrúnarskúr) í Hrísey, ásamt því að reisa tjaldskemmu til bráðabirgða. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

7.Eyjafjarðarbraut - flugvöllur - byggingarstjóri

Málsnúmer 2012020002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Byggingarfélagið Hyrna ehf., kt. 710594-2019, óskar eftir að vera byggingarstjóri yfir viðbyggingu við tækjageymslu/slökkvistöð Mhl. 11 á Akureyrarflugvelli við Eyjafjarðarbraut. Umboð hefur Helgi Snorrason.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Dalsbraut - endurbætur á gluggum

Málsnúmer 2012040127Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 24. apríl 2012 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að gera endurbætur á gluggum og hafa glerskipti í Lundarskóla að Dalsbraut.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og óskar eftir uppfærðum byggingarnefndarteikningum.

9.Austurbyggð 17 - framkvæmdir á lóð

Málsnúmer 2012040126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um leyfi fyrir breytingum á lóðinni kringum Dvalarheimilið Hlíð að Austurbyggð 17.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu erindisins.

10.Brekkugata 17 - endurbætur á gleri

Málsnúmer 2012040125Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 24. apríl 2012 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að gera endurbætur á gleri í byggingu Amtsbókasafnsins að Brekkugötu 17.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

11.Hringteigur 2 - gámasvæði

Málsnúmer 2012050006Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. apríl 2012 þar sem Ingvar Ívarsson f.h. Fasteigna ríkissjóðs, kt. 690981-0259, sækir um byggingarleyfi fyrir gámasvæði vegna sorpflokkunar við VMA að Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ingvar Ívarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.