Grænamýri 20 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012030260

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 392. fundur - 11.04.2012

Erindi dagsett 29. mars 2012 þar sem Sigurður Sigurðsson og Hólmfríður Dóra Kristjánsdóttir sækja um að fá að gera bílastæði og aðkeyrslu frá Mýravegi að húsi sínu að Grænumýri 20. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Í dag er átta metra breið innkeyrsla inn á lóðina Grænumýri 20 þar sem pláss er fyrir þrjá bíla. Erindinu er því hafnað.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 395. fundur - 02.05.2012

Erindi dagsett 16. apríl 2012 þar sem Sigurður Sigurðsson og Hólmfríður Dóra Kristjánsdóttir sækja um leyfi til að gera bílastæði og aðkeyrslu frá Mýravegi að bakdyrainngangi húss síns að Grænumýri 20. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsstjóra hefur borist neikvæð umsögn framkvæmdadeildar og erindinu er því hafnað.