Jaðarsíða 11-15 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012030098

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 389. fundur - 14.03.2012

Erindi dagsett 7. mars 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Árness ehf., kt. 680803-2770, og Karólínu ehf., kt. 660795-2439, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 11-15 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Tryggva Tryggvason. Einnig er umsókn um að fara eftir eldri byggingareglugerð 441/1998.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 391. fundur - 28.03.2012

Erindi dagsett 7. mars 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Árness ehf., kt. 680803-2770, og Karólínu ehf., kt. 660795-2439, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 11-15 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Tryggva Tryggvason. Einnig er umsókn um að fara eftir eldri byggingareglugerð 441/1998.
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið h. varðandi hönnun umferðarleiða innan bygginga sjá kafla 6.4.
2. Gr. 6.7.2 Algild hönnun.
3. Gr. 6.7.8. Íbúðarherbergi varðandi kröfu um eitt 14m2 herbergi.
4. Gr. 6.12.6 Sorpgeymslur og sorpflokkun.
5. Gr. 9.5.5. Björgunarop varðandi kröfu um breidd og hæð.
6. Gr. 13.2.1 til 13.3.3 Varðandi útreikning heildarleiðnitaps, heildarorkuþarfar og hámarks U-gilda byggingarhluta.
Innkomnar nýjar teikningar 21. mars 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 391. fundur - 28.03.2012

Erindi dagsett 27. mars 2012 þar sem Hafsteinn Sigurðsson f.h Karólínu ehf., kt. 660795-2439, og Baldur Sigurðsson f.h. Árness ehf., kt. 680803-2770 óska eftir takmörkuðu byggingarleyfi til að hefja framkvæmdir að Jaðarsíðu 11-15.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Leyfið tekur til graftar, jarðvegsskipta, undirstaðna og lagna í jörð innan og utan við undirstöður.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 392. fundur - 11.04.2012

Erindi dagsett 27. mars 2012 þar sem Árnes ehf., kt. 680803-2770, sækir um að vera byggingarstjóri við nýbyggingu að Jaðarsíðu 11-15. Umboð hefur Hafsteinn Sigurðsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 427. fundur - 09.01.2013

Erindi móttekið 27. desember 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Karólínu ehf., kt. 660795-2439, og Árness ehf., kt. 680803-2770, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Jaðarsíðu 11-15.
Sótt er um undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012:
Gr. 8.5.2. Gler.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason dagsettar 17. desember 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.