Rauðamýri 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbótum

Málsnúmer 2012020105

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 385. fundur - 15.02.2012

Erindi dagsett 10. febrúar 2012 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Jóns Björns Arasonar sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsinu að Rauðumýri 1. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Þröst Sigurðsson.

Skipulagsstjóri samþykkir að veita umsækjanda takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsteypu á burðarsúlum en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 386. fundur - 22.02.2012

Erindi dagsett 10. febrúar 2012 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Jóns Björns Arasonar sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsinu að Rauðumýri 1. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Þröst Sigurðsson. Innkomnar nýjar teikningar 22. febrúar 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 386. fundur - 22.02.2012

Erindi dagsett 14. febrúar 2012 þar sem Júlíus Fossberg sækir um að vera byggingarstjóri við endurbætur hússins að Rauðumýri 1. Innkomið starfsleyfi frá Mannvirkjastofnun 22. febrúar 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.