Aðalstræti 9 - umsókn um byggingarleyfi fyrir útigeymslu

Málsnúmer 2012010170

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 381. fundur - 18.01.2012

Erindi dagsett 13. janúar 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Benedikts Arthurssonar og Hrannar Friðriksdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir útigeymslu við húsið nr. 9 við Aðalstræti. Meðfylgjandi eru nýjar reyndarteikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomið skriflegt samþykki nágrannanna að Aðalstræti 7 fyrir steyptan stoðvegg milli lóða.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 383. fundur - 01.02.2012

Erindi dagsett 13. janúar 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Benedikts Arthurssonar og Hrannar Friðriksdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir útigeymslu við húsið nr. 9 við Aðalstræti. Meðfylgjandi eru nýjar raunteikningar af húsi nr. 9 við Aðalstræti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomið skriflegt samþykki nágrannanna að Aðalstræti 7 um steyptan stoðvegg milli lóða. Innkomnar nýjar teikningar og gátlisti 27. janúar 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.