Tryggvabraut 3 - fyrirspurn um viðbyggingu

Málsnúmer 2011110001

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 372. fundur - 09.11.2011

Erindi dagsett 31. október 2011 þar sem Valdimar Harðarson f.h. N1 hf., kt. 540206-2010, leggur inn fyrirspurn um hvort byggingarleyfi fáist fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Tryggvabraut 3. Meðfylgjandi eru nánari skýringar í bréfi og teikningar.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í fyrirspurnina og bendir á að samþykki lóðarhafa í Tryggvabraut 1 þarf að fylgja byggingarleyfisumsókninni.