Hrafnagilsstræti 28 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2011100030

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 368. fundur - 12.10.2011

Erindi dagsett 7. október 2011 þar sem Jónína Auður Sigurðardóttir óskar eftir leyfi til að stækka bílastæði við hús sitt að Hrafnagilsstræti 28. Meðfylgjandi er afstöðumynd og nánari skýringar. Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda hússins.
Skipulagsstjóri samþykkir umbeðið bílastæði enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Jafnframt greiði umsækjandi kostnað við úrtak úr kantsteinum/gangstétt.