Sunnuhlíð 11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2011090153

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 367. fundur - 05.10.2011

Erindi dagsett 30. september 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Halldórs Arnars Kristjánssonar og Sigurbjargar Óskar Jónsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Sunnuhlíð 11 þar sem á að vera inngangur og þvottaaðstaða á neðri hæð og glerskáli með verönd á efri hæð. Óskað er eftir leyfi til að hefja jarðvegsskipti sem fyrst. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Ekki er hægt að verða við ósk um jarðvegsskipti þar sem byggingarstjóra, meistara og

undirstöðuteikningar vantar.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 368. fundur - 12.10.2011

Erindi dagsett 30. september 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Halldórs Arnars Kristjánssonar og Sigurbjargar Óskar Jónsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Sunnuhlíð 11 þar sem á að vera inngangur og þvottaaðstaða á neðri hæð og glerskáli með verönd á efri hæð. Óskað er eftir leyfi til að hefja jarðvegsskipti sem fyrst. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 11. október 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.