Fjárhagsáætlun 2012 - fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2011090069

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 26. fundur - 19.09.2011

Fyrir fundinn voru lagðar til kynningar forsendur fjárhagsáætlunar 2012, sem samþykktar hafa verið í bæjarráði.

Logi Már Einarsson S-lista og Jóhann Gunnar Sigmarsson A-lista gera eftirfarandi bókun:

Við fyrstu sýn er þessi hagræðingarkrafa algjörlega óraunhæf. Við lýsum furðu á því að gera eigi meiri hagræðingarkröfu á skóla og uppeldismál en flestum öðrum sviðum. Við skorum á bæjaryfirvöld að forgangsraða í þágu barna og unglinga.

Skólanefnd - 27. fundur - 03.10.2011

Fyrir fundinn voru lögð fyrstu drög að fjárhagsáætlun málaflokksins fyrir árið 2012 til kynningar og umræðu.

Skólanefnd - 28. fundur - 05.10.2011

Á fundinum var farið yfir helstu þætti fjárhagsáætlunar málaflokksins fyrir árið 2012.

Skólanefnd - 29. fundur - 10.10.2011

Til umfjöllunar voru tillögur að fjárhagsáætlun málaflokksins fyrir árið 2012.
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista yfirgaf fundinn kl. 14:00.

Skólanefnd - 30. fundur - 17.10.2011

Fyrir fundinn var lögð tillaga að fjárhagsáætlun fræðslu- og uppeldismála fyrir fjárhagsárið 2012. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir því að rekstarkostnaðurinn verði kr. 4.528.166.000 sem er í samræmi við nýja tillögu að ramma. Gert er ráð fyrir því í áætluninni að eftirtaldir liðir verði bættir í ramma: kr. 10.400.000 vegna kostnaðar við stuðning barna í leikskólum, kr. 8.500.000 vegna hækkunar á niðurgreiðslum vegna m.a. systkinafsláttar og einstæðra, kr. 24.000.000 vegna hækkunar kostnaðar vegna dagforeldra, kr. 7.500.000 vegna fjölgunar um 1,2 stöðugildi aðstoðarleikskólastjóra skv. kjarasamningi, kr. 15.000.000 leiðrétting vegna einkareknu leikskólanna Hólmasólar og Hlíðarbóls, kr. 5.000.000 leiðrétting vegna húsaleigu leikskólanna Sunnubóls, Krógabóls og Tröllaborga, kr. 4.140.000 vegna aukins kostnaðar vegna tölvuþjónustu samanber miðlægan samning, kr. 900.000 vegna húsaleigu kennaraíbúðar í Grímsey og kr. 3.400.000 leiðréttingu vegna vanáætlaðs kostnaðar við rekstur Tónlistarskólans í Hofi.
Gjaldskrá leikskóla er leiðrétt þannig að dvalartími í leikskóla verði kr. 2.840 á mánuði sem þýðir að 8 klst. á dag kosta á mánuði kr. 22.723 og fullt fæði verði kr. 6.840 á mánuði. Með þessari breytingu verður hlutur foreldra af heildartekjum sem hlutfall af brúttó kostnaði leikskólanna 22,5% í stað 21,2% áður. Breyting á gjaldskrá fæðis tekur mið af því að í leikskólum á fæðissala að standa undir hráefnisverði. Skv. þessu er gjaldskrá vegna fæðis í leikskólunum leiðrétt um u.þ.b. 5%. Gjaldskrá grunnskóla er leiðrétt þannig að máltíð nemenda verði 350 kr. og máltíð starfsmanna 250 kr. Breyting fæðis í grunnskólunum tekur mið af því að fæðissala standi undir launum, auk hráefniskostnaðar. Gjaldskrá skólavistunar er leiðrétt um 12%. Þá er gjaldskrá Tónlistarskólans leiðrétt um 12% þar sem annar rekstrarkostnaður hækkar mikið en skólagjöld eru hugsuð til að mæta öðrum kostnaði en launum kennara og stjórnenda.
Áfram verður leitað leiða til að hagræða í málaflokknum á árinu 2012.

Meirihluti skólanefndar samþykkir fyrir sitt leyti framkomna tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og vísar henni til bæjarráðs.

Sædís Gunnarsdóttir S-lista og Helgi Vilberg Hermannsson A-lista sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Jóhannes Gunnar Bjarnason, Jakobína Elín Áskelsdóttir og Kristjana I. Gunnarsdóttir viku af fundi kl. 15:45.

Skólanefnd - 32. fundur - 07.11.2011

Til kynningar var farið yfir breytingar sem voru gerðar á fjárhagsáætlun fræðslu- og uppeldismála vegna lækkunar á tryggingagjaldi.

Skólanefnd - 35. fundur - 19.12.2011

Logi Már Einarsson S-lista óskaði eftir því að tekin væri umræða í nefndinni um áhrif gjaldskrárhækkana í leikskólum og grunnskólum sem samþykktar hafa verið í fjárhagsáætlun 2012. Þá óskaði hann eftir umræðu um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á matarmálum skólanna. Logi lýsti yfir miklum áhyggjum af því hvaða afleiðingar þessar hækkanir og breytingar geti haft fyrir börn og fjölskyldur í bænum.
Á fundinum voru einnig lögð fram gögn sem sýna samanburð á gjaldskrám Akureyrarbæjar við gjaldskrár nokkurra stórra sveitarfélaga.

Skólanefnd samþykkir að halda umræðum um þessi mál áfram eftir áramót.

Jóhannes G. Bjarnason áheyrnarfulltrúi yfirgaf fundinn kl. 14:50.
Vilborg Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi yfirgaf fundinn kl. 15:40.
Logi Már Einarsson S-lista yfirgaf fundinn kl. 16:00.