Hofsbót - umsókn um breytingu á skipulagi

Málsnúmer 2011090039

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 121. fundur - 14.09.2011

Erindi dagsett 8. september 2011 þar sem Hörður Blöndal f.h. Hafnasamlags Norðurlands, kt. 650371-2919, óskar eftir að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna lengingar á grjótgarði í Hofsbót.

Meirihluti skipulagsnefndar felur skipulagsstjóra að vinna aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2. málslið 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem síðar verði lögð fyrir nefndina. Auður Jónasdóttir V-lista greiðir atkvæði á móti afgreiðslunni.