Skoðunarferð umhverfisnefndar um Hrísey

Málsnúmer 2011080064

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 62. fundur - 28.06.2011

Farin var skoðunarferð um Hrísey og litið þar á ýmis verkefni sem tilheyra þeim málaflokkum sem undir nefndina heyra. Einnig var haldinn stuttur fundur með íbúum í Hlein.

Umhverfisnefnd - 63. fundur - 06.07.2011

Farin var skoðunarferð um Grímsey og litið þar á ýmis verkefni sem tilheyra þeim málaflokkum sem undir nefndina heyra.

Umhverfisnefnd - 65. fundur - 13.09.2011

Tekið fyrir erindi frá Hverfisráði Hríseyjar dags. 23 ágúst 2011 ásamt undirskriftarlista íbúa sem mótmæla lokun á jarðgerðarstöðinni Jóru í Hrísey.
Bæjartæknifræðingur, Helgi Már Pálsson, kynnti erindið frá hverfisráðinu og fór yfir þær breytingar á meðferð lífræns úrgangs í Hrísey sem fyrirhugaðar eru og áætlaðan kostnað vegna þessara breytinga.

Umhverfisnefnd lýsir yfir mikilli óánægju með að ákveðið hafi verið að hætta moltuframleiðslu í Hrísey. Þessi ákvörðun var tekin án samráðs við Hríseyinga og án þess að umhverfisnefnd væri upplýst um málið eða fengið nokkuð um ákvörðunina að segja, þrátt fyrir að fara með stefnumótun úrgangsmála í sveitarfélaginu.