Oddeyrartangi - húsaleigusamningur við Dregg lagnir ehf

Málsnúmer 2011060119

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 191. fundur - 01.07.2011

Lögð fram drög dags. 1. apríl 2011 að húsaleigusamningi við Dregg lagnir ehf um lagerhúsnæði við Grímseyjargötu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir leigusamninginn.

Sigfús Karlsson B-lista situr hjá þar sem hann telur að hér sé ekki um eðlilega endurnýjun á leigusamningi að ræða og telur að það eigi að bjóða út húsnæðið til leigu.