Kambsmýri 12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gróðurhús

Málsnúmer 2011060098

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 118. fundur - 27.07.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Svanur Eiríksson f.h. Jóhanns Thorarensen sækir um byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi á lóðinni Kambsmýri 12. Meðfylgjandi er teikning eftir Svan Eiríksson.

Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Skipulagsnefnd - 121. fundur - 14.09.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Svanur Eiríksson f.h. Jóhanns Thorarensen sækir um byggingarleyfi fyrir gróðurhús í garðinum að Kambsmýri 12.
Erindið var grenndarkynnt þann 28. júlí 2011 til 26. ágúst 2011. Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 365. fundur - 21.09.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Svanur Eiríksson f.h. Jóhanns Thorarensen sækir um byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi í garði sínum að Kambsmýri 12. Meðfylgjandi er teikning eftir Svan Eiríksson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 371. fundur - 02.11.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Svanur Eiríksson f.h. Jóhanns Thorarensen sækir um byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi í garði hans að Kambsmýri 12. Meðfylgjandi er teikning eftir Svan Eiríksson. Innkomin ný teikning 27. október 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.