Klettastígur 14 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og fl.

Málsnúmer 2011060097

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 354. fundur - 29.06.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Jóns Harðarsonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á austurhlið og ýmsum breytingum að Klettastíg 14. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 355. fundur - 06.07.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Jóns Harðarsonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á austurhlið og ýmsum breytingum að Klettastíg 14. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 5. júlí 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki meðeigenda.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 366. fundur - 28.09.2011

Erindi dagsett 22. september 2011 þar sem Baldur Sigurðsson sækir um að vera byggingarstjóri yfir viðbyggingu við Klettastíg 14.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.