Reglur um húsaleigu- og æfingastyrki til aðildarfélaga ÍBA

Málsnúmer 2011060022

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 93. fundur - 09.06.2011

Fulltrúar í stjórn ÍBA mættu á fundinn og gerðu grein fyrir nýtingu úthlutaðra æfingatíma í íþróttamannvirkjum Akureyrarkaupstaðar.

Rætt um reglur um húsaleigu- og æfingastyrki fyrir aðildarfélög ÍBA. Ákveðið að setja á fót vinnuhóp sem hefur það markmið að endurskoða reglur og vinnulag ásamt því að leggja ný drög fyrir íþróttaráð.

Íþróttaráð skipar Nóa Björnsson og Erling Kristjánsson sem fulltrúa sína í vinnuhópinn og óskar eftir því við stjórn ÍBA að hún skipi einnig tvo fulltrúa í vinnuhópinn.