Byggingarreglugerð - ósk um umsögn vegna nýrrar reglugerðar

Málsnúmer 2011060010

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 119. fundur - 10.08.2011

Erindi dags. 31. maí 2011 frá umhverfisráðuneytinu þar sem fram kemur að á undanförnum mánuðum hafi staðið yfir vinna við gerð nýrrar byggingarreglugerðar. Óskað er eftir umsögn um framkomin vinnudrög og að þau berist ráðuneytinu eigi síðar en 15. ágúst nk.

Skipulagsstjóra og formanni skipulagsnefndar er falið að fullgera umsögn um drög að nýrri byggingarreglugerð í samræmi við umræður á fundinum.