Strandgata 49 - umsókn um byggingarleyfi fyrir palli við götuna

Málsnúmer 2011050172

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 350. fundur - 01.06.2011

Erindi dagsett 31. maí 2011 þar sem Sigurbjörg Níelsdóttir f.h. FAB Travel ehf., kt. 580504-5040, sækir um að byggja pall sunnan við Strandgötu 49, 8-12cm háan og 3-4m x 8-10m að stærð. Meðfylgjandi eru ljósmyndir.

Staðgengill skipulagsstjóra í samráði við framkvæmdadeild getur ekki samþykkt leyfi til að byggja pall á gangstétt utan lóðar en heimilar umsækjanda að nýta umbeðinn hluta gangstéttarinnar á opnunartíma. Gæta skal að því að frí gönguleið á gangstétt sé a.m.k. tveir metrar.