Slökkvilið Akureyrar starfsmannamál

Málsnúmer 2011050139

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 234. fundur - 27.05.2011

Farið var yfir vinnu í starfsmannamálum hjá Slökkviliði Akureyrar.

Framkvæmdaráð - 235. fundur - 16.06.2011

Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri sátu fundinn undir þessum lið og fóru yfir minnisblöð vinnuhópa vegna starfsmannamála hjá Slökkviliði Akureyrar.

Framkvæmdaráð heimilar bæjartæknifræðingi og slökkviliðsstjóra að halda áfram vinnu vinnuhópa vegna starfsmannamála hjá Slökkviliði Akureyrar.

Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi.

Framkvæmdaráð - 236. fundur - 19.08.2011

Framhald umræðu frá síðasta fundi.

Framkvæmdaráð samþykkir að starfsmanna- og stjórnendafundir slökkviliðs verði haldnir samkvæmt tillögu vinnuhópa út árið 2011. Unnið verði áfram með aðrar tillögur vinnuhópanna og þeim síðan vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.