Framkvæmdaráð

236. fundur 19. ágúst 2011 kl. 08:22 - 10:27 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Bergur Þorri Benjamínsson fundarritari
Dagskrá

1.Fjáhagsáætlun 2011 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2011080050Vakta málsnúmer

Farið var yfir stöðu framkvæmda ársins og forgangsröðun endurmetin.
Bæjartæknifræðingur ásamt forstöðumönnum gatna- og umhverfismála fóru yfir rauntölur vegna framkvæmda yfirstandandi árs.

Framkvæmdaráð samþykkir að færa til framkvæmdir innan fjárhagsramma í samræmi við umræður á fundinum.

2.Slökkvilið Akureyrar - starfsmannamál

Málsnúmer 2011050139Vakta málsnúmer

Framhald umræðu frá síðasta fundi.

Framkvæmdaráð samþykkir að starfsmanna- og stjórnendafundir slökkviliðs verði haldnir samkvæmt tillögu vinnuhópa út árið 2011. Unnið verði áfram með aðrar tillögur vinnuhópanna og þeim síðan vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.

3.Melateigur - umferðarmál

Málsnúmer 2007100039Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð hefur á fundi þann 30. apríl 2010 vísað til skipulagsnefndar b) lið úr 3. lið fundargerðar bæjarráðs frá 21. apríl 2010 þar sem íbúi mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa og vildi benda á mikinn umferðarþunga á Kjarnagötu við Naustaskóla, sem skapar hættu fyrir skólabörn sem þurfa þar yfir. Kjarnagata er hönnuð sem 30 km gata í deiliskipulagi Naustahverfis. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir hraðatakmarkandi aðgerðum á aðkomuleiðum fyrir börn á leið í Naustaskóla m.a. með sérmerktum gangbrautarsvæðum og upphækkunum. Skipulagsnefnd vísaði erindinu á fundi sínum þann 9. júní 2010 til framkvæmdadeildar og leggur til að framkvæmdum við lokafrágang götunnar við Naustaskóla verði hraðað.

Framkvæmdaráð samþykkir að fara í framkvæmdir við lokafrágang Kjarnagötu við Naustaskóla, ef svigrúm er á fjárveitingu ársins til umferðaröryggismála.

Fundi slitið - kl. 10:27.