Skarðshlíð - Þórsvöllur - umsókn um stöðuleyfi gáma

Málsnúmer 2011050028

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 346. fundur - 04.05.2011

Erindi dagsett 4. maí 2011 þar sem Sigfús Ólafur Helgason f.h. Íþróttafélagsins Þórs, kt. 710269-2469, sækir um bráðabirgðastöðuleyfi frá 5. maí 2011 til 1. október 2011 fyrir tveimur 20 feta gámum hvorum ofan á öðrum á austurkanti Þórsvallar við Skarðshlíð. Nánari skýringar í meðfylgjandi bréfi.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir tímabundið stöðuleyfi til 1. október 2011.