Vestursíða 1a - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á þakrými

Málsnúmer 2011050006

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 346. fundur - 04.05.2011

Erindi dagsett 2. maí 2011 þar sem Bjarn Reykjalín f.h. Eyglóar B Björnsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á þakrými að Vestursíðu 1a. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Bjarna Reykjalín.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 370. fundur - 26.10.2011

Erindi dagsett 21. október 2011 þar sem fram kemur að Eygló Brynja Björnsdóttir er hætt við breytingar á þakrými að Vestursíðu 1a sem samþykkt var 5. maí sl., og óskar eftir að fá endurgreitt gatnagerðargjald og byggingarleyfisgjald sem hún var búin að greiða vegna breytingarinnar. Sjá frekar í bréfi.

Skipulagsstjóri samþykkir að fella byggingaráformin úr gildi. Gatnagerðargjald er endurgreitt í samræmi við 9. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda og byggingarleyfisgjald að undanskildu gjaldi vegna yfirferðar uppdrátta að upphæð kr. 12.718.-. Umsækjandi skal hafa samband við fjárreiðudeild Akureyrarkaupstaðar vegna endurgreiðslunnar.