Oddeyrargata 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hurð

Málsnúmer 2011040118

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 346. fundur - 04.05.2011

Erindi dagsett 20. apríl 2011 þar sem Lena Magnúsdóttir f.h. Starfsmannafélags Icelandair, kt. 650679-0329, sækir um byggingarleyfi til að breyta glugga á suðurhlið Oddeyrargötu 1 í hurð og byggja pall utanvið. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Harald Ingvarsson.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 348. fundur - 18.05.2011

Erindi dagsett 20. apríl 2011 þar sem Lena Magnúsdóttir f.h. Starfsmannafélags Icelandair, kt. 650679-0329, sækir um byggingaleyfi fyrir að breyta glugga á suðurhlið Oddeyrargötu 1 í hurð og byggja pall utanvið. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Harald Ingvarsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. maí 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.