Geislagata 9 - umsókn um byggingarleyfi - breytingar 1. hæð

Málsnúmer 2011030153

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 342. fundur - 30.03.2011

Erindi dagsett 24. mars 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð í Ráðhúsinu að Geislagötu 9. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 343. fundur - 06.04.2011

Erindi dagsett 24. mars 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð í Ráðhúsinu að Geislagötu 9. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar nýjar teikningar 5. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið. Vísað er til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar þeim tilmælum að nú þegar verði hafist handa við að byggja stigahús norðan hússins í samræmi við samþykktar teikningar þar sem um öryggismál er að ræða.