Frostagata 6c - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2011030120

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 341. fundur - 23.03.2011

Erindi dagsett 15. mars 2011 þar sem Ingólfur Fr. Guðmundsson f.h. Rafmanna ehf., kt. 411297-2419, sækir um lóðarstækkun 58,0 fermetra til norðurs við núverandi lóð nr. 6c við Frostagötu. Fyrirhuguð er viðbygging við norðurgafl hússins að grunnfleti um 105,0 fermetrar. Einnig er óskað eftir leyfi fyrir fjórum bílastæðum á suðurenda núverandi lóðar. Meðfylgjandi er loftmynd.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem umbeðin lóðarstækkun skarast yfir á þegar úthlutaða lóð.