Hafnarstræti 93-95 - fyrirspurn um gistiheimili.

Málsnúmer 2011030014

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 339. fundur - 09.03.2011

Erindi dags. 2. mars 2011 þar sem Hallur Gunnarsson leggur fram fyrirspurn um hvort byggingarleyfi fáist til að starfrækja gistiheimili fyrir allt að 20 manns að Hafnarstræti 93-95, 4. hæð.

Umrædd bygging er staðsett á miðbæjarsvæði þar sem heimilt er að starfrækja gistiheimili. Að öðru leyti er bent á að sækja þarf um breytingu á notkun á húsnæðinu

með þeim gögnum sem til þarf.