Brekkugata 13 - fyrirspurn um breytingar í gistirými.

Málsnúmer 2011030007

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 339. fundur - 09.03.2011

Erindi dags. 25. febrúar 2011 þar sem Atli Gunnarsson f.h. Soleil de Minuit, kt. 480207-0410, leggur fram fyrirspurn um hvort fáist undanþága á kröfu um handlaug í hverju herbergi ef hann breyti Brekkugötu 13 í gistiheimili.

Skipulagsstjóri getur ekki orðið við erindinu, þar sem reglugerð um veitinga-, gististaði og skemmtanahald nr. 585/2007, 8. grein, kveður skýrt á um að handlaug skuli vera í hverju herbergi.