Hafnarstræti 22 - umsókn um byggingarleyfi fyrir kaffihús.

Málsnúmer 2011020161

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 339. fundur - 09.03.2011

Erindi dagsett 25. febrúar 2011 þar sem Haraldur Árnason f.h. Eldbjargar ehf., kt. 520293-2139, sækir um byggingarleyfi fyrir fullkomnu eldhúsi í útbyggingu og stólum fyrir allt að 100 kaffigesti að Hafnarstræti 22. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 345. fundur - 20.04.2011

Erindi dagsett 19. apríl 2011 þar sem Haraldur Árnason f.h. Eldbjargar ehf., kt. 520293-2139, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af breytingum að Hafnarstræti 22. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 347. fundur - 11.05.2011

Lagðar inn teikningar 6. maí 2011 þar sem Haraldur Árnason f.h. Eldbjargar ehf., kt. 520293-2139, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af breytingum að Hafnarstræti 22. Um er að ræða veitingastað í flokki II fyrir allt að 50 manns.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.