Laxagata - Hólabraut - deiliskipulagsbreyting - athugasemdir og fyrirspurnir

Málsnúmer 2011020151

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 339. fundur - 09.03.2011

Bæjarráð vísaði til skipulagsdeildar á fundi 3. mars 2011 erindi úr viðtalstíma 24. febrúar s.l. frá Jóni Ólafssyni.
Jón spurðist fyrir um fyrirhugaðar deiliskipulagsbreytingar í Laxagötu og Hólabraut. Hefur hann efasemdir um að rétt leið sé farin

Skipulagsstjóri bendir á að deiliskipulagsstillaga vegna breytinga á Laxagötu og Hólabrautareit verður auglýst miðvikudaginn 9. mars 2011. Hægt verður að skila inn formlegum athugasemdum til og með 20. apríl 2011.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 339. fundur - 09.03.2011

Bæjarráð vísaði til skipulagsdeildar á fundi 3. mars 2011 erindi úr viðtalstíma 24. febrúar s.l. frá Frímanni Jónassyni.
Frímann ræddi fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulagi í Laxagötu og Hólabraut. Hann er óánægður með að ÁTVR skuli halda sínum rekstri áfram á þessum stað.