Miðholt 4 - Fyrirspurn um leyfi fyrir bílskúr.

Málsnúmer 2011020124

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 110. fundur - 09.03.2011

Erindi dags. 23. febrúar 2011 þar sem Jón Ingi Guðmundsson leggur fram fyrirspurn um hvort leyfi fáist fyrir 40 m² bílgeymslu á lóð hans að Miðholti 4. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsnefnd frestar erindinu. Óskað er eftir nánari upplýsingum um hæðarsetningu fyrirhugaðs bílskúrs og samþykki eigenda Miðholts 6 fyrir breytingunni.