Undirhlíð 3 - Umsókn um graftrarleyfi fyrir bílgeymslu.

Málsnúmer 2011020080

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 336. fundur - 16.02.2011

Erindi dagsett 9. febrúar 2011 þar sem Helgi Örn Eyþórsson f.h. SS Byggir ehf., kt. 620687-2519, sækir um graftrarleyfi fyrir bílgeymslu við Undirhlíð 3.

Skipulagsstjóri veitir heimild til jarðvegsskipta fyrir bílgeymslu við hús nr. 3 við Undirhlíð ásamt staðsetningu bílastæðis suðvestan bílgeymslu, utan girðingar. Jarðvegsskiptin skulu gerð í samráði og undir eftirliti verkfræðistofunnar Mannvits f.h. Akureyrarbæjar. 
Að öðru leiti gilda ákvæði staðfests deiliskipulags fyrir svæðið. Sérstaklega er bent á ákvæði 5.2  í skilmálum sem fjalla um jarðvegsframkvæmdir, grundun fjölbýlishússins og kostnað vegna eftirlits.