Hlíðarfjall - beiðni um umsögn umhverfisnefndar á tillögu á deiliskipulagi Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2011020043

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 57. fundur - 08.03.2011

Tekið fyrir erindi frá skipulagsnefnd dags. 8. febrúar 2011 þar sem óskað er umsagnar umhverfisnefndar á deiliskipulagi Hlíðarfjalls - skíðasvæði við Akureyri.

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að deiliskipulagi Hlíðarfjalls.

Umhverfisnefnd bendir þó á að ýtrustu varkárni skuli ávallt gætt varðandi vinnu við skíðasvæði innan vatnsverndarsvæðis. Sömuleiðis leggur umhverfisnefnd til að þjónustuvegum á deiliskipulagssvæði verði lokað fyrir vélknúnum ökutækjum á sumrin til að sporna við utanvegaakstri.