Umhverfisnefnd

57. fundur 08. mars 2011 kl. 16:15 - 17:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigmar Arnarsson formaður
  • Hulda Stefánsdóttir
  • Kolbrún Sigurgeirsdóttir
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Sorpmál - staða innleiðingar

Málsnúmer 2010120023Vakta málsnúmer

Helgi Pálsson rekstrarstjóri Gámaþjónustu Norðurlands ehf mætti á fundinn og upplýsti nefndina um stöðu innleiðingarinnar á sorphirðukerfinu.

Umhverfisnefnd þakkar Helga kynninguna.

Umhverfisnefnd lýsir vonbrigðum yfir hægagangi á innleiðingu nýs sorphirðukerfis, en fagnar jafnframt þeim árangri sem hefur náðst í endurvinnslumálum.

Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað að hún lýsti yfir óánægju með hversu innleiðing nýja sorphirðukerfisins hefur gengið seint og illa. Auk þess skorar hún á bæjaryfirvöld að fara sem fyrst í kynningarherferð til að upplýsa bæjarbúa enn betur um nýja leið í sorphirðu.

2.Loftslagsráðstefna á Akureyri - 2011

Málsnúmer 2011020004Vakta málsnúmer

Umræður um fyrirhugaða loftslagsráðstefnu vinabæja Akureyrar á Norðurlöndunum sem fyrirhugað er að halda á Akureyri.

Umhverfisnefnd leggur til að loftslagsráðstefna vinabæja verði haldin haustið 2011.

Umhverfisnefnd vísar málinu til bæjarráðs.

3.Hreinsunarátak 2011

Málsnúmer 2011030036Vakta málsnúmer

Rætt um hvort halda eigi sérstaka hreinsunarviku og hvernig skuli standa að henni.

Umhverfisnefnd leggur til að hreinsunar- og umhverfisvika verði haldin í vor. Nefndin felur Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi og Jóni Birgi Gunnlaugssyni forstöðumanni umhverfismála að vinna áfram að verkefninu.

4.Grænn apríl - styrkbeiðni

Málsnúmer 2011020091Vakta málsnúmer

Erindi dags. 8. febrúar 2011 frá Guðrúnu G. Bergmann f.h. Græns apríls, þar sem verkefnið Grænn apríl er kynnt. Sótt er um styrk að upphæð kr. 500.000 til reksturs verkefnisins þá þrjá mánuði sem unnið er að framkvæmd þess.

Umhverfisnefnd hafnar erindinu.

5.Sorphreinsun frá stofnunum Akureyrarkaupstaðar

Málsnúmer 2011030035Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur dags. 15. febrúar 2011 frá Jóni Braga Gunnarssyni hagsýslustjóra og Karli Guðmundssyni verkefnastjóra um hvernig standa skuli að útboði á sorphreinsun frá stofnunum Akureyrarkaupstaðar.

Umhverfisnefnd samþykkir tillögurnar og óskar eftir því við Jón Braga Gunnarsson og Karl Guðmundsson að þeir komi með tillögur að nánari útfærslu. Óskað er eftir tillögunum til yfirlestrar þegar þær eru lengra á veg komnar.

6.Hlíðarfjall - beiðni um umsögn umhverfisnefndar á tillögu á deiliskipulagi Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2011020043Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá skipulagsnefnd dags. 8. febrúar 2011 þar sem óskað er umsagnar umhverfisnefndar á deiliskipulagi Hlíðarfjalls - skíðasvæði við Akureyri.

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að deiliskipulagi Hlíðarfjalls.

Umhverfisnefnd bendir þó á að ýtrustu varkárni skuli ávallt gætt varðandi vinnu við skíðasvæði innan vatnsverndarsvæðis. Sömuleiðis leggur umhverfisnefnd til að þjónustuvegum á deiliskipulagssvæði verði lokað fyrir vélknúnum ökutækjum á sumrin til að sporna við utanvegaakstri.

Fundi slitið - kl. 17:50.